31.03.2009 07:47:23 / agusta_n
Þá er ég búin að stofna mér nýtt blogg...þetta er slóðin:
http://agustanielsen.blog.is
Sjáumst þar
»
26.03.2009 01:39:28 / agusta_n
Er að opna mér síðu á Mogga Blogginu! Er komin með hálfgert leið af þessu bloggi og allt svo flókið í sambandi við aukahluti og tengla. Svo finnst mér þeman ekki nógu flott fyrir nýja hausinn minn
Læt ykkur vita hvernig fer með nýja bloggið og slóðina.
Thank you - come again
»
24.03.2009 02:33:52 / agusta_n
Þetta gerist sem betur fer ekki oft, en það er ROTTA í heimsókn í skrifstofunni
Stór brún tístandi rotta. Sit núna með fæturnar í stólnum því ég er í pilsi og opnum skóm í dag. Ekki besta fata valið þegar rotta er að sníglast um.
Það er ausandi rigning úti og hrikalega dimmt, bara eins og vetur á Íslandi. Mér finnst á svona dögum ættum við bara að hafa lokað vegna veðurs! Annars ekkert nýtt að frétta, bara allt í gúddí hérna megin.
Thank you - come again
»
20.03.2009 04:19:48 / agusta_n
Azerbaijan...þetta land er hálf evrópskt land og hálf asískt land. Þeir kalla þetta land vera í Eurasia ásamt tveimur öðrum löndum; Georgia og Armania. Mjög athyglisvert og ég spyr, hvernig er hægt að vera hluti af tveimur heimsálfum? Ætti það ekki að vera annaðhvort eða?

Í dag er föstudagur og aðeins hálfur vinnudagur á morgun og svo min heilagi sunnudagur! Það er frekar glatað að eiga bara einn frídag í viku!! Svona er lífið...vinna vinna vinna
Góða helgi
Thank you - come again
»
19.03.2009 08:38:03 / agusta_n
Hvað þýðir annars "oggu"? Furðulegt orð
Ég hef voðalega lítið að segja nema allt gott bara. Sit í vinnunni að melta kjúkklinginn sem ég borðaði í "hádeigis-mat", set gæsalappir því klukkan er núna 16 og ég var að koma úr mat
Fínt að hafa nóg að gera og tíminn flýgur...og ég er ekki að tala um að fljúga eins og fugl heldur eins og þota...mér finnst ég var að mæta í vinnuna
Thank you - come again
»
16.03.2009 07:48:10 / agusta_n
Hvernig er hægt að gleyma að setja aðra linsuna í sig? Ég get svarið það ég gleymdi að setja í mig vinstri linsuna og er því eitthvað hálf blind og ringluð hér í vinnunni
Vanalega er ég með auka linskur í töskunni en enmitt í dag skipti ég um tösku og tók ekki draslið sem var í hinni töskunni.
Yep brandarinn á mig í dag
Eigiði góðan dag!!
Thank you - come again
»
11.03.2009 07:00:22 / agusta_n
Hehehe...eða svona næstum því. Ég vinn alla daga frá 8.30 til svona ca. 18-18.30 fer heim fæ mér að borða og horfi kannski á eina bíómynd og stein ligg eftir það. Er núna að horfa á Dagvaktina...alger snilld...gaman að sjá eitthvað Íslenskt.
Þetta er alls ekki svo leiðinlegt vinna því hér er alltaf nóg að gera og ég er fín í svona þjónustustarfi. Ég sit í svona stóru skrifstofu rími, mikið umstang, símarnir hringja í kór og allt að gerast. Alveg mitt umhverfi, samstarfsfólkið mitt er hresst og tíminn flýgur.
Er mikið að pæla í mastersnámi þar sem ég fæ 70% afslátt þar sem ég er starfsmaður
En aftur á móti eru tímarnir um helgar, laugardögum 14-19 og sunnudögum 9-19...sem þýðir að eftir vinnu hér rúmlega 13 á laugardögum beint í tíma og enginn frídagur!! Er ekki viss um að ég fíli það, leithaugurinn ég
Thank you - come again
P.s. er að vinna í nýjum haus...eins og stóra siss
»
04.03.2009 07:52:18 / agusta_n
Ég sit núna í vinnunni...orðin frekar heiladauð því klukkan er að verða fjögur. Ég er búin að sætta mig við hvað ég er að gera hér og er staðráðin að gera þetta með stæl
Var að klára blað fyrir nemendur við Limkokwing um nemendur og uppákomur hér við skólann. Er að reyna að bæta upplýsingaflæðið hér í skólanum og gera hann skemmtilegri. Þetta er útkoman...so far.
Annars lítið að frétta, alveg hætt að djamma þar sem ég er bara í fríi á sunnudögum og nenni ekki að eyða honum í þynnku
....shhiiiit, ég er orðin gömul
Kannski lagast þetta þegar ég er orðin vön að vakna snemma og farin að fitta betur inn hérna. Thank you - come again
»
19.02.2009 02:35:05 / agusta_n
Ég sit hérna í vinnunni í skólanum og er að bíða eftir að e-mailið mitt verði virkt. Þangað til er ekki mikið sem ég get gert. Það sem ég á að gera er að svara fyrirspurnum á netinu og reyna að fá evrópska nemendur inn í skólann. Svo núna er ég að reyna að kynna mér deildirnar í skólanum og kanna markaðinn í evrópu. Ég komst af því að það eru 50 lönd í Evrópu!!
Þetta er alveg leiðinleg vinna...en ég er ennþá með allar klær úti að finna mér drauma starfið. Ég er að senda út mail og umsóknir héðan úr vinnunni
Vonandi verð ég ekki gómuð!! Og þar sem tölvan sem ég er á er ótrúlega hæg er lítið sem ég get gert á henni, engin hönnunar forrit til að leika mér á.
Thank you - come again
»
13.02.2009 09:03:16 / agusta_n
Takk fyrir allan sönginn og kveðjurnar á afmælisdaginn minn
Wendy, sem ég bý með, kom heim frá Kenya á sunnudaginn og vinkona hennar var í heimsókn í 4 daga. Þær gáfu mér græna inniskó og þessa huges köku sem var árituð "Happy Birthday Agooosta". Hér heima er ég annað hvort kölluð Agooosta (eins og gæs - Goose) eða Aggí.
Fyrsti vinnudagurinn minn í skólanum fór ekki vel...var send heim með hálsbólgu og hita
Það verður taka tvö á mánudaginn á fyrsta vinnudeiginum
Thank you - come again
»
06.02.2009 09:12:09 / agusta_n
Jæja...það er ótrúlegt hvað maður getur verið latur að blogga. En þar sem engar fréttir eru héðan er ekkert að blogga. Ég fór í atvinnuviðtal í gær og það gékk bara vel en þau voru að leita af vef hönnuði. Konan sem ég talaði við sagði að verkin mín væru góð og hún mun senda mér kontakta í businessnum. Svo eitthvað gott kom út úr viðtalinu
Ég er annars búin að ráða mig í vinnu í skólanum...ég nenni ekki þessu "aðgerðarleysi"...ekki það að ég geri ekkert allan daginn, er stanslaust að senda e-mail, en ég get gert það úr vinnunni í skólanum og ég fæ borgað fyrir það.
Góða helgi
Thank you - come again
»
26.01.2009 07:05:59 / agusta_n
»
10.01.2009 10:27:42 / agusta_n
...mér er farið að líða eins og heimavinnandi húsmóður, fyrir utan það að hér eru engir krakkar
Ég er búin að taka niður jólaskrautið, fyrir utan englana við ætlum að leyfa þeim að hanga. Allt húsið er hreint og fínt og öll fötin mín hrein.
Er að rembast við að uppsetja Indesign aftur á tölvuna mína til að búa til skemmtileg nafnspjöld fyrir umsóknirnar mínar. En ég skráði mig á síðu sem heitir jobstreet og fæ send allavegana 5 atvinnu tilboð á dag. Mjög gott og allt í gangi!!!
Góða helgi
Thank you - come again
»
Síður:
1 2 3 ...
20